Stórsýning húnvetnskra hestamanna Í Reiðhöllinni Arnargerði
Reiðhöllin Arnargerði er 9 ára um þessar mundir en að því tilefni verður á laugardaginn kl. 14:00 haldin stórsýning húnvetnskra hestamanna í Reiðhöllinni.
Að þessu sinni er sýningin borin uppi af almennum hestamönnum og konum á öllum aldri og u.þ.b. 50 börnum/unglingum. Markmiðið er að sýna þá miklu breidd sem er í iðkendahópnum hér í héraðinu og hvaða ánægju og skemmtun menn geta haft af návist við hesta og menn þegar færi gefst frá hinu daglega amstri. Auk þess heimsækir okkur Sigurbjörn Bárðarson en hann kom einmitt á fyrstu sýninguna. Miðaverð er kr. 1.200 fyrir 13 ára og eldri en kr. 500 fyrir 12 ár og yngri.
