Strætó á hliðina í Hrútafirði
Bílstjóri og einn farþegi voru um borð í strætisvagni sem fór á hliðina í vonskuveðri á vegakaflanum milli Staðarskála og Reykjaskóla í Hrútafirði á áttunda tímanum í gærkvöldi. Engin slys urðu á fólki en viðbraðsaðilar hlúðu að þeim og farið var með þá í Staðarskála eins og fram kemur í frétt á visir.is
Samkvæmt veðurspá verður áframhaldandi leiðindarveður á þessum slóðum í dag.