Strákar, ekki gleyma Konudeginum á sunnudaginn

Ég henti í smá pistil fyrir kvenþjóðina fyrir Bóndadaginn en nú er komið að ykkur strákar að gefa konunni eitthvað sniðugt á Konudaginn. Nú þarf ég að passa mig að hafa pistilinn ekki of langan því þið viljið hafa allt einfalt því ef það verður of flókið þá gætuð þið fengið valkvíða og hætta við að gefa elskunni ykkar gjöf, og það má alls ekki gerast. Þetta snýst ekki um að hafa gjöfina dýra heldur er það hugsunin á bak við gjöfina sjálfa.

Ég ætla að nefna þennan lista;

Ef konan þín.....

- er búin að kvarta undan vöðvabólgu seinustu vikurnar,  gefðu henni þá nudd.

- nefndi við þig að vinkona hennar var að kaupa sér nýtt ilmvatn sem var svo góð lykt af, spyrðu þá vinkonu hennar hvaða ilmvatn, farðu og keyptu það.

- talaði um að henni hafi langað að sjá myndina How to be Single,  gefðu henni þá gjafabréf í bíó.

- kveikir oft á ilmkerti, þá selur Lotta K á Sauðárkróki vörurnar frá Durance. Ilmkertin frá þeim eru einstaklega góð, sérstaklega Poppy lyktin, sem er mín uppáhalds. 

- elskar þegar þú/annar eldar, eldaðu fyrir hana uppáhalds matinn hennar eða farðu með hana út að borða.

- er mikið fyrir tertur, þá er Kaka ársins sem seld er í öllum bakaríum landsins núna, guðdómlega góð.   

- elskar að fá sér smá dreitil á góðu kvöldi, keyptu handa henni hvítvíns- eða rauðvínsflösku, osta, ritz og vínber og gerðu kósý heima.

- elskar að fá blóm, farðu þá í næstu blómabúð og keyptu einn fallegan vönd og kannski eitthvað sniðugt með, súkkulaði kannski. 

- elskar þegar þú tekur frumkvæðið í þrifunum á heimilinu. Sendu hana út af heimilinu og settu í vél, skúraðu og þurrkaðu af og þú gætir hugsanlega fengið eitthvað launað fyrir það seinna um kvöldið.

- þráir smá frí frá börnunum, reddaðu pössun og farðu með hana í óvissuferð á hótel í grendinni og gistið í eina nótt, held að þið hafið bæði gott af því.

 

Gangi ykkur vel strákar!

Fleiri fréttir