Stúlkan frá Kænugarði í Hörpunni

Sunnudaginn 17. mars kl. 17:00 ætlar Alexandra Chernyshova að syngja lög frá Úkraínu í salnum Kaldalóni í Hörpu. Á efnisskrá eru úkraínsk þjóðlög, sum hver frá 16. öld. Þessi lög eru venjulega sungin án undirleiks eða með undirleik á kobza, sem er gamalt þjóðlegt úkraínskt hljóðfæri.

Lögin eru hér sungin í útsetningum frægra úkraínskra tónskálda á borð við Lisenko, Ljatoshinsjkiy, Zjaremba, Chisko, Verevki og Kaufmana.

Jónína Erna Arnadóttir leikur á píanó og Guðrún Ásmundsdóttir leikkona verður kynnir.

Eftir tónleika býðst gestum að smakka á úkraínskri matargerð, þ.e. úkraínskri kjötrauðrófusúpu með úkraínsku brauði - pampushli

Allir velkomnir á skemmtilega stund með „Stúlku frá Kænugarði".

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir