Stúlkan útskrifuð af gjörgæslu
Stúlka, sem slasaðist alvarlega í vélsleðaslysi í Austur-Húnavatnssýslu á laugardag, var útskrifuð af gjörgæsludeild í gær og liggur á Barnaspítala Hringsins, samkvæmt heimildum mbl.is. Stúlkurnar voru tvær á sleðanum þegar slysið varð en hin stúlkan var útskrifuð af Landspítalanum eftir skoðun á laugardagskvöld en hún var farþegi á sleðanum.
Slysið átti sér stað á sveitabæ og eru stúlkurnar taldar hafa misst stjórn á vélsleðanum með þeim afleiðingum að hann hafnaði undir heyrúlluvagni við bæinn. Læknir skoðaði stúlkurnar á vettvangi og voru þær síðan fluttar með sjúkrabílum á Sauðárkrók og þaðan var flogið með þær í sjúkraflugi suður til Reykjavíkur.
Samkvæmt frétt mbl.is voru stúlkurnar báðar með hjálm. Þær eru báðar fæddar um aldamótin.