Styrking krónunnar skilar sér ekki til neytenda
Frá því í febrúar á þessu ári hefur krónan verið að styrkjast, segir á heimasíðu Neytendasamtakanna. Þar er tekið dæmi að evran var 172,96 kr. samkvæmt sölugengi Seðlabankans 1. febrúar sl. hinn 30. apríl sl. var sölugengið hinsvegar komið í 153,34 kr. Þannig hefur krónan styrkst um 12,7% gagnvart evru á þessu þriggja mánaða tímabili.
Neytendasamtökin skoðuðu verðbreytingar á nokkrum vöruflokkum matvæla á þessu sama tímabili og komust að því að innfluttar mat- og drykkjarvörur hafa aðeins lækkað um 1,1%, grænmeti (innlent og erlent) hefur hækkað um 2,2%, búvörur án grænmetis um 2,2% og aðrar innlendar matvörur um 1,1%.
„Það er því ljóst að verðbreytingar hafa ekki verið í samræmi við styrkingu krónunnar. Að sjálfsögðu skiptir styrkingin minna máli þegar um innlendar vörur er að ræða en innfluttar. Í mörgum tilvikum vegur hins vegar kostnaður vegna innflutts hráefnis þó nokkuð við framleiðslu á innlendum matvörum,“ segir á ns.is.