Styrkir til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Styrkir hafa verið veittir úr stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024 til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða. Tvö verkefni á Norðurlandi vestra hljóta styrk á árinu 2021. Þetta kemur fram á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Verkefnin tvö eru:

  • Hitaveita í Hrútafirði, mat á jarðhitasvæði og hugsanleg stækkun hitaveitu. Styrkfjárhæð 7.200.000,-
  • Sól í sveit – tóvinna, textíll og ferðamenn. Uppbygging textíltúrisma á Húnavöllum. Styrkfjárhæð 6.000.000,- 

Verkefni um uppbyggingu innviða í tengslum við gagnaverssvæði á Blönduósi er jafnframt styrkt af þessum lið byggðaáætlunar skv. samningi frá árinu 2018 og hlýtur árið 2021 styrk upp á 25.000.000,-.

Nánari upplýsingar um lið C1, sértæk verkefni sóknaráætlunarsvæða, á byggðaáætlun má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir