Styrkir vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra

SSNV málefni fatlaðra hefur vakið athygli á rétti fólks til að sækja um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra – og tækjakaupa fatlaðra. Heimilt er að veita styrk til greiðslu námskostnaðar vegna náms sem hefur gildi sem hæfing eða endurhæfing.

Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.
Umsóknir þurfa að berast á þar til gerðu eyðublaði SSNV, ásamt greinargerð og ljósriti af örorkuskírteini, til viðkomandi félagsþjónustu en þar er hægt að fá umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 22. febrúar.

Fleiri fréttir