Styrktarsjóðsball um helgina

Hið árlega Styrktarsjóðsball verður haldið nk. laugardag á Blönduósi þar sem tilgangurinn er bæði að safna fyrir góðum málefnum sem og að skemmta sér og öðrum. Styrktarsjóður Húnvetninga var stofnaður árið 1974 með samstilltu átaki nokkurra félaga á Blönduósi og nágrenni.

Hátíðarkvöldverður hefst klukkan 20:30 þar sem fyrirtækjum og hópum er boðin þátttaka og svo verður dansað fram á nótt með hljómsveitinni Von ásamt Matta Matt.

Fleiri fréttir