Stytt sér stundir í gangnakofum

Smölun á Grímstungu- og Haukagilsheiði hefur tafist vegna veðurs en þar hefur verið þoka og hríð. 

Fram kemur á mbl.is að gangnastjórinn, Jón B. Bjarnason í Ási, hafi fengið gamla vinnumenn sína til að koma með tertur í þrjá skála í gærkvöldi í tilefni þess að hann er nú fimmtugasta haustið sitt í göngum. Hann var þá staddur í Álkuskála.

Gangamenn hafa þurft að stytta sér stundir á meðan þeir hafa beðið eftir að veðrið batni. Þá tók Guðmundur Stefánsson landbúnaðarhagfræðingur sér í hönd bitlaus skæri og tók sér hlutverk hársnyrtis.

„Þeir fóru sjálfviljugir í stólinn og urðu að bera sig vel. Þeir gátu samt ekki verið of ánægðir, það varð að láta klipparann heyra það,“ segir Sigrún Grímsdóttir matráðskona um mennina þrjá sem fengu klippingu.

Þrátt fyrir tafir sem hafa verið vegna dimmviðris er vonast til að hægt verði að hefja réttastörf í Undirfellsrétt um hádegi á morgun en safnið af Haukagilsheiði kemur ekki fyrr en síðdegis.

Fleiri fréttir