Styttist í beinar rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar

Volvo lúxusrútur Gray line munu flytja farþegar frá Keflavíkurflugvelli beint til Akureyrar.
Volvo lúxusrútur Gray line munu flytja farþegar frá Keflavíkurflugvelli beint til Akureyrar.

Beinar áætlunarferðir Gray Line milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar hefjast sunnudaginn 17. apríl næstkomandi. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september. Upphaflega var áformað að hefja aksturinn 3. apríl en því þurfti að fresta vegna óvæntra tafa við innleiðingu á nýrri bókunarvél á netinu.

Á leiðinni milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar verður stoppað fyrir farþega í Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi og Varmahlíð. Eingöngu verður stoppað á viðkomandi stöðum ef farþegi hefur bókað far á vefsíðu Gray Line eða á sölustöðum fyrirtækisins. Ávallt verður að bóka far fyrirfram.

Lúxusrútur úr flota Gray Line annast ferðirnar. Þær eru með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internettengingu og tveir bílstjórar verða ávallt með í för til að tryggja gæði þjónustunnar.

Áætlun Gray Line Airport Express er uppbyggð þannig að flugfarþegar sem koma til landsins síðdegis komast norður í land fyrir miðnætti og farþegar að norðan komast beint í morgunflug.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir