Styttist í opnun Blöndu
Nú er rétt rúm vika í að Blanda í Austur-Húnavatnssýslu opni, en hún er ein af þeim laxveiðiám þar sem veiði hefst snemma sumars. Blanda skiptist í fjögur svæði og er það aðeins svæði eitt sem opnar 5. júní. Laxveiði á svæðum tvö til fjögur hefst 20. júní.
Í fyrra veiddust 832 laxar í Blöndu og var það 1.200 löxum færra en árið 2011 sem var metár þegar áin gaf 2.777 laxa. Minnkandi veiði í fyrra í Blöndu var í takt við lélega veiði í flestum ám landsins síðasta sumar, segir á vefnum huni.is.