Suddirarirei kveðja úr geimnum

Veðurblíðan á Skagaströnd er orðin heimsfræg og þykir ekki skrítið. Á heimasíðu Skagastrandar má sjá færslu þar sem sagt er frá því að vingangur mælist ekki á staðnum þó blæs helst í hviðum í logni. Þá sveimar veðurhnötturinn HBY11LL stjórnlaust um himinhvolfið en í gærmorgun barst Veðurstofu Skagastrandar meðfylgjandi gerfitunglamynd að morgni dags yfir norðurhveli jarðar.

Með myndinni barst óundirrituð kveðja til Skagstrendinga með þakkir fyrir unaðsríka daga á síðustu Kántrýhátíð og er beðið um lagið Súddirarirei með Gylfa Ægissyni ... 

Á myndinni má greina hluta af Skagaströnd og þá sérstaklega brunahanann sem ávallt er fyrstur á fætur á morgnanna. Auk þess má glöggt sjá eftirfarandi:

  • Hitastigið er -0,8 gráður
  • Vindgangur er enginn, núll, zero, nada, null, nothing ... og blés’ann fyrir tíu mínútum af suðaustan, af norðan fyrir tuttugu mínútum og vestan fyrir þrjátíu. Í logni blæs helst í hviðum, en hvorki hljómkviðum eða hljómhviðum
  • Af brunahananum má greina að loftþrýstingur er stöðugur í 128 hPa
  • Engar væntingar er af Icesave miðað við stöðu brunahanans sem hefur ekki færstu úr stað síðan í gær.
  • Af ofangreindum má ráða að gott veður er á Skagaströnd og mettir allir kviðir. Það er gott mál nema á milli mála.

/Skagaströnd.is

Fleiri fréttir