Suðlægar áttir ríkjandi næstu daga
Sunnan 3-8 og bjartviðri er á Ströndum og Norðurlandi vestra en 5-10 og þykknar upp á morgun. Hiti 4 til 10 stig að deginum, en nálægt frostmarki í innsveitum í nótt. Þá eru vegir greiðfærir um mestallt land.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Suðlæg átt, 3-10 m/s og léttskýjað á N- og A-landi, en annars skýjað og þurrt að mestu. Hiti 2 til 10 stig að deginum, svalst inn til landsins.
Á laugardag og sunnudag:
Suðvestan 8-13 m/s og dálitlar skúrir eða él, en hægari og bjartviðri eystra. Hiti 0 til 8 stig, mildast á Austfjörðum.
Á mánudag:
Suðlæg átt og víða rigning, en norðlægari og slydda nyrst. Kónar fyrir norðan.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Breytilegar áttir og rigning syðst, en annars slydda eða snjókoma með köflum og kólnandi veður.