Suðuhermar í FNV vöktu athygli

Á föstudag var sagt frá komu fulltúra frá Iðunni fræðslusetri, sem heimsóttu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og höfðu meðferðis tvo suðuherma af fullkomnustu gerð sem nemendur í málmiðnadeild FNV og Árskóla fengu að spreyta sig á ásamt áhugasömum gestum.

Hermarnir voru til sýnis í málmiðnadeildinni og komu margir til þess að sjá þessa framtíðarkennslutækni en hún gerir nemendum kleift að æfa sig í málmsuðu í sýndarveruleika. Með tækinu sparast tími og efniskostnaður sem annars færi í venjulega suðu með tilheyrandi reyk og óþrifnaði. Tækið metur svo árangur suðumannsins með tilliti til gæða suðunnar og geta nemendur og kennarar farið yfir verkið lið fyrir lið með hinum ýmsu útreikningum.

Að sögn Geirs Eyjólfssonar kennara er tæknin ný og var þetta í fyrsta sinn sem hún er kynnt á Íslandi en enn sem komið er hefur það ekki verið keypt inn í skólakerfið.

Fleiri fréttir