Áfram hlýtt en kólnar eftir helgina

Veðrið kl. 15 í dag, fimmtudaginn 23. júní, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/Vedur.is
Veðrið kl. 15 í dag, fimmtudaginn 23. júní, skv. spá Veðurstofu Íslands. Mynd/Vedur.is

Suðvestlæg eða breytileg átt er á Ströndum og Norðurlandi vestra, 3-8 og léttskýjað, en þokuloft við ströndina. Hiti 12 til 20 stig. Þykknar upp á morgun, dálítil rigning síðdegis.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:

Suðvestan 5-10 m/s, skýjað og súld eða dálítil rigning í fyrstu, en léttir til á Norður- og Austurlandi. Suðaustan 8-13 og fer að rigna SV-lands um kvöldið. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu. 

Á sunnudag:

Sunnan 5-13 m/s og rigning, einkum V-til á landinu. Víða skúrir síðdegis, en rofar til á NA- og A-landi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast NA-lands. 

Á mánudag:

Breytileg átt og skúrir eða rigning í flestum landshlutum. Hiti 8 til 15 stig. 

Á þriðjudag:

Norðanátt og skúrir, en rigning fyrir norðan. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast syðst. 

Á miðvikudag:

Norðanátt og rigning, en þurrt sunnantil á landinu.

Fleiri fréttir