SúEllen kemur "heim"

SúEllen heimsækir nú Sauðárkrók og ætlar að kynna nýjan disk á Mælifelli og spila sín þekktustu lög föstudagskvöldið 4. október.Hefjast tónleikarnir kl 23:00. Mikil eftirvænting er í hljómsveitarmeðlimum, enda Sauðárkrókur núverandi heimabær Steinars Gunnarssonar bassaleikara auk þess sem sveitin hljóðritaði nokkur lög disksins í sumarbústað í Varmahlíð fyrir rúmu ári síðan. Má þar m.a. nefna lagið „Vorkvöld í Atlavík“ sem hljómað hefur talsvert í útvarpi og verið sýnt á sjónvarpstöðinni N4.

Nýútkominn diskur sveitarinnar heitir „Fram til fortíðar“ og var plata vikunnar á Rás 2 vikuna 11.-18. ágúst og fékk einkunnina 8,35 hjá Andreu Jónsdóttur og 4 stjörnur í nýlegum dómi.

Hljómsveitin átti sitt blómaskeið frá 1987-1994 er hún lagðist í dvala. Þekktust eru lögin Símon er lasinn, sem fór í 1. sæti vinsældarlista Rásar 2 (1987), Elísa (1988), Kona (1991), Ferð án enda (1992), Þessi nótt (1993) og Svart silki (2003).

SúEllen eru:

Guðmundur R. Gíslason: Söngur og umsýsla

Steinar Gunnarsson: Bassi, söngur og raddir

Jóhann Geir Árnason: Trommur og ásláttur

Ingvar Lundberg: Píanó og hljómborð

Bjarni H. Kristjánsson: Gítar, söngur og raddir

Fleiri fréttir