Sumarblíðan lætur bíða eftir sér

Það er vetrarveður í kortunum hjá snillingunum á Veðurstofunni. Spáð er klassísku vetrarveðurshatttrikki; frosti, hvassviðri og snjókomu, í dag og á morgun, og verða íbúar á Norðvesturlandi að prísa sig sæla með að hitastigin skríði ekki mikið yfir frostmarkið fyrr en undir helgi.

Nú í hádeginu á sunnudegi er þegar farið að hríða og hvessa á Sauðárkróki en verst virðist veðrið vera á Skagatá en þar er vindur rúmir 20 metrar á sekúndu að norðaustan og snjókoma.

Spáin gerir ráð fyrir norðaustan 15-23 m/s og snjókoma, en éljum síðdegis. Norðan 13-18 í kvöld, hægari seint á morgun. Frost 0 til 5 stig.

Greiðfært er sem stendur um flesta vegi en hvasst er á Holtavörðuheiði, krap og snjór á Þverárfjallsvegi og hálkublettir og éljagangur á Siglufjarðarvegi og á Öxnadalsheiði. Þar sem Íslendingar eiga allir sem einn að vera komnir með sumardekkinn undir bílana þá er rétt að fólk hafi varann á sér í umferðinni.

Fleiri fréttir