Sumarbúðir fyrir ungt fólk í Eistlandi - Sveitamenning og sjálfbært samfélag
Sanna menningarsetrið í suður Eistlandi starfrækir sumarbúðir fyrir ungt fólk á aldrinum 20 – 25 ára. Hér er um að ræða vinnubúðir og námskeið þar sem kenndir eru sjálfbærir lifnaðarhættir. Áhersla er lögð á vistvænar byggingar og á umhverfið. Nes-Listamiðstöð á Skagaströnd vill bjóða fjórum ungmennum, frá Norðurlandi vestra, fría þátttöku í þessum sumarbúðum.
Um er að ræða frítt þátttökugjald og fríar ferðir. Sumarbúðirnar standa frá 22. júní til 4. júlí 2012. Námsleiðið er undirbúið og því stýrt af samtökum samstarfsaðila.
Á námskeiðinu verður m.a. lögð áhersla á:
- Bygging á táknrænu geitar- og kjúklingahúsi. Byggingarefnið er torf og leir, sem finnst á staðnum.
- Bygging á jarðgerðu salerniskerfi
- Bygging á útisturtum þar sem notast er við sólarorku og regnvatn.
- Bygging á hefðbundnu raka gufubaði
Sanna menningarsetrið mun bjóða upp á sýningaferðir um nágrennið, öllum að kostnaðarlausu. Verkefnið er styrkt með fjárframlagi frá Kultur Kontakt Nord.
Þeir sem áhuga hafa á þátttöku vinsamlegast hafið sem allra fyrst samband við Melody Woodnutt framkvæmdastjóra hjá Nes- Listamiðstöð. Aðeins er um að ræða fjögur frípláss, en fyrstur kemur fyrstur fær.
Melody Woodnutt Manager.
Nes-Listamiðstöð
Skagaströnd, Iceland
Email: nes@neslist.is
GSM: 691 5554
Heimasíða: http://neslist.is/
Sanna menningarsetrið
www.kultuurimois.kultuuritehas.ee
/Fréttatilkynning