Sumardagurinn frysti…?

Það var sæmilegasta veður hér norðan heiða í dag. Á morgun er, samkvæmt almanakinu, dagur sem kallast Sumardagurinn fyrsti en kemur manni stundum spánskt fyrir sjónir – þó fátt minni á sjálfan Spán. Á morgun gerir Veðurstofa Íslands í það minnsta ráð fyrir frosti og ekki ólíklegt að það kasti éljum.

Orðrétt segir spáin nú í kvöld um veðrið næsta sólarhringinn: Snýst í norðan 5-13 með kólnandi veðri og éljum í nótt. Frost 0 til 5 stig á morgun.

Áframhald verður á kuldabola næstu dagana þar á eftir; norðan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s. Él fyrir norðan og austan, frost 0 til 8 stig yfir daginn.

Skagfirðingar og nærsveitamenn ættu þó að geta glaðst yfir Sæluviku Skagfirðinga sem verður sett á sunnudaginn.

Fleiri fréttir