Sumarnámskeið Ad Astra
Ad Astra sem er lítið fyrirtæki hefur áhuga á því að efla menntun á Íslandi og leggur sig fram við að koma til móts við bráðger og námsfús börn. Frá árinu 2007 hafa verið haldin námskeið fyrir þessi börn en þá á vorin og haustin en núna á að fara af stað með nýtt verkefni, sumarnámskeið fyrir bráðger og námsfús börn á aldrinum 9-13 ára.
-Á þessum námskeiðum langar okkur að setja saman skemmtilega og fræðandi viku fyrir börn. Við verðum með fjölbreytt úrval námskeiða í boði og blöndum svo tómstund, hópefli, hreyfingu og skemmtun við og reynum þannig að skapa þessum börnum ógleymanlega sumar minningu. Dæmi um námskeið sem verða í boði eru þýska, tölvuleikjagerð, kvikmyndagerð, ljósmyndun, framkoma, stærðfræði, tækni-Lego og fleira, segir í tilkynningu frá Ad Astra.
-Við teljum að bráðger börn séu hópur sem vil gleymast í skólakerfinu og finnst okkur mikilvægt að reyna að koma til móts við þau. Að vera bráðger eða á undan samnemendum sínum er misþroski sem getur haft í för með sér ýmsa fylgikvilla. Bráðger börn geta þjást af miklum kvíða, haft lélegt sjálfsmat og svo er líka algengt að þessum börnum leiðist í skólanum sem getur haft mjög neikvæð áhrif á sjálfsímynd barnsins. Barni sem leiðist í skóla getur annaðhvort dregið sig í hlé og orðið skuggi á vegg eða farið að ónáða og láta illa í kennslustundum.
Með þessum námskeiðum sem við ætlum að bjóða upp á í sumar erum við að koma til móts við þennan nemendahóp og það sem skipir líka máli er að vekja fólk til umhugsunar á þessu týnda málefni.
Samgöngumöguleikar til og frá svæðinu eru góðir, hvort sem kosið er að keyra, taka strætó, ganga eða hjóla. Við skipulag námskeiðanna var sérstaklega litið til þess að sem þægilegast væri fyrir foreldra í vinnu að keyra og sækja börnin.
Sjá meira á http://adastra.is/ og http://www.facebook.com/AdAstraehf