Sumarstörf námsmanna hjá SSNV

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, auglýsa tvö sumarstörf fyrir námsmenn. Störfin eru studd úr átaksverkefni ríkisstjórnarinnar til fjölgunar sumarstarfa.

Verkefnin sem um ræðir snúa að tveimur átaksverkefnum í tengslum við gönguleiðir og merkingar áhugaverðra staða á Norðurlandi vestra. Þau felast meðal annars í hnitsetningu og stikun göngu-, hlaupa og hjólaleiða, gerð leiðarlýsinga og skráningu grunnupplýsinga um viðkomandi leiðir, söfnun og skráningu staða sem vantar á skilti og merkingar í landshlutanum o.s.frv.

Námsmennirnir munu vinna saman að framangreindum verkefnum. Megin starfsstöð þeirra getur verið á einhverri af þremur skrifstofum samtakanna á Sauðárkróki, Skagaströnd eða Hvammstanga. Möguleiki er á að koma upp starfsaðstöðu í öðrum þéttbýliskjörnum á starfssvæði SSNV. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi bílpróf.

Skilyrði er að námsmennirnir séu á milli anna, þ.e. hafi stundað nám á vormisseri, séu skráðir í nám á haustmisseri og geti framvísað staðfestingum þar um. Ráðningartími er tveir mánuðir á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst 2020. Umsækjendur þurfa að vera að lágmarki 20 ára á árinu og eiga lögheimili á Norðurlandi vestra.

Nánari upplýsingar veitir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, unnur@ssnv.is

Tekið er á móti umsóknum til og með 28. maí í gegnum umsóknarform hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir