Sundæfingar hjá Sunddeild Hvatar að hefjast

Á vef Húna eru auglýstar sundæfingar sem hefjast mánudaginn 2. september í sundlauginni á Blönduósi eftir gott sumarfrí.

Æfingar verða á mánudögum kl. 17:30 – 18:30 og fimmtudögum kl. 17 - 18 fyrir börn fædd 2005 og eldri. Æfingar fyrir börn fædd 2006-2008 verða á fimmtudögum kl. 16:15 - 17.

Fyrstu tvær vikurnar eru ókeypis þar sem allir mega koma og prófa. Eftir þær verða iðkendur skráðir og fá senda greiðsluseðla. Önnin kostar 3.500 krónur fyrir yngstu börnin en 7.000 krónur fyrir þau eldri.

Sunddeild Hvatar vonast til að sjá sem flesta.

Fleiri fréttir