Sunna Líf og Tinna Björk sigruðu söngkeppni FNV

Söngkeppni FNV 2014 var haldin á Sal Bóknámshúss FNV miðvikudaginn 12. febrúar fyrir fullu húsi. Kynnar voru þeir Agnar Ingi Ingimundarson og Ísak Óli Traustason. Alls tóku þrettán keppendur þátt og fluttu níu lög. Sigurvegarar að þessu sinni voru þær Sunna Líf Óskarsdóttir og Tinna Björk Ingvarsdóttir með lagið I See Fire.

Í öðri sæti var Inga Margrét Jónsdóttir með lagið Addicted og þeir félagar Halldór Ingólfsson, Friðrik Ingimundarson og Hlöðver Þórarinsson fengu verðlaun fyrir frumlegasta lagið, en þeir fluttu lagið Say Something. Að lokinni söngkeppninni var haldið skólaball á sal skólans.

http://www.youtube.com/watch?v=KjTkmq4g2Zg Meðfylgjandi myndband sýnir þær Tinnu og Sunnu flytja sigurlagið eftir að úrslitin urðu ljós.

Ekki er ljóst hvar eða hvenær söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin í ár.

 

Fleiri fréttir