Súpa og sagnaleikur á Skagaströnd.
Í október árið 2007 fékk félagið Spákonuarfur frá Skagaströnd styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra til þess að rita sögu Þórdísar spákonu, en hún var kvenskörungur sem getið er í nokkrum Íslendinga- og þjóðsögum. Samkvæmt þessum heimildum bjó Þórdís, sem hvoru tveggja var framsýn og fjölkunnug, við rætur Spákonufells á Skagaströnd og er hún fyrsti íbúinn sem sögur fara af á þessum slóðum.
Í framhaldi af sögurituninni hefur Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson fært sögu Þórdísar í leikrænan búning og nú í október byrjun verður sagan sett á svið á Skagaströnd undir leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Eru öll hlutverk í höndum heimamanna sem hafa verið við æfingar undanfarnar vikur.
Þegar sýningar hefjast í byrjun október geta gestir átt góða kvöldstund á Skagaströnd þar sem boðið verður upp á þjóðlegar veitingar í formi kjötsúpu og þátta úr sögu Þórdísar í leikrænum búningi.
