Súpufundur og námskeið á vegum Markaðsstofu Norðurlands

Þróun og uppbygging á ferðaþjónustu að vetri til er efni hádegisfundar MN. Ljósm./KSE
Þróun og uppbygging á ferðaþjónustu að vetri til er efni hádegisfundar MN. Ljósm./KSE

Föstudaginn 15. janúar 2016, á efri hæð á Greifanum Akureyri, verður haldið námskeið um breytingar á virðisaukaskatt í ferðaþjónustu á vegum KPMG 11:00-12:00 og súpufundur um þróun og uppbyggingu í vetrarferðaþjónustu á Norðurlandi 12:00-13:00.

Samkvæmt fréttatilkynningu er nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið og fundinn og merkja við viðeigandi hluta sem hver einn hefur hug á að sækja. Súpa og salat verður borin fram á seinni fundinum og kostar það 1500kr. Skráning fer fram hér

Námskeið um breytingar á virðisaukaskatt í ferðaþjónustu fer yfir þau atriði sem ber að hafa í huga nú á nýju ári með nýjum reglum. Námskeiðið er leitt af KPMG.

Þróun og uppbygging á ferðaþjónustu að vetri til er efni hádegisfundarins. Við fáum framsögu frá aðilum sem hafa unni að þessu. Þeir sem taka til máls eru Gunnar Atli Fríðuson frá Jarðböðunum, Andreas Baumgartner frá Inspiration Iceland og Finnur Yngvi Kristinsson frá Sigló Hótel.

Á fundinum verður boðið upp á súpu og salat, 1500kr.

Fleiri fréttir