Svæðamót í sveitakeppni

Svæðamót Norðurlands vestra í sveitakeppni var háð um síðastliðna helgi en keppt var um rétt til að spila í undanúrslitum Íslandsmóts í sveitakeppni í bridge. Norðurland vestra á rétt til að senda þrjár sveitir til þátttöku.

Alls voru spilaðir sex tuttugu spila leikir. Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar sigraði alla andstæðinga sína með miklum mun og fengu 146 stig af 150 mögulegum. Sveit Sparisjóðsins skipuðu: Ólafur Jónsson, Birkir Jónsson, Jón Sigurbjörnsson og Friðjón Þórhallsson

Annað sætið hreppti sveit Fisk-Seafood með 89 stig en með henni spiluðu: Ásgrímur Sigurbjörnsson, Jón Örn Berndsen, Eyjólfur Sigurðsson, Ólafur Sigmarsson, Bjarki Tryggvason og Skúli V Jónsson.

Þriðja sætið kom í hlut Sveitar Guðna Kristjánssona með 62 stig, en auk hans spiluðu Ólafur Stefánsson, Einar Svavarsson, Kristján Birgisson, Stefán Berndsen og Sólveig Róarsdóttir.

 

Fleiri fréttir