Svandís í beinni í hádeginu

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, verður í Beinni línu á Facebook-síðu sinni og VG í hádeginu í dag, 7. janúar klukkan 12:00. Í tilkynningu frá VG segir að um kjörið tækifæri sé að ræða til að spyrja ráðherra út í hvaðeina sem brennur á fólki.

„Þetta er kjörið tækifæri til að spyrja ráðherra út í hvaðeina sem brennur á fólki, verkefni hennar í nýju ráðuneyti, loftslagsmálin, hvort hún sakni allra Covid-tengdu verkefnanna í heilbrigðisráðuneytinu eða hvort það sé mikilvægt að vera með varalit í vasanum?!, verkefni hennar í nýju ráðuneyti, loftslagsmálin, hvort hún sakni allra Covid-tengdu verkefnanna í heilbrigðisráðuneytinu eða hvort það sé mikilvægt að vera með varalit í vasanum?!“

Til að gefa fólki tækifæri á að kynnast forystufólki hreyfingarinnar betur standa Vinstri græn reglulega fyrir Beinni línu á samfélagsmiðlum en hægt er að senda spurningar á vg@vg.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir