Svart og hvítt frumsýnd 1. maí

Nokkrir nemendur í Blönduskóla á Blönduósi hafa unnið að gerð kvikmyndar í vetur og nú er komið að frumsýningu myndarinnar þann 1. maí nk. í Blönduósbíói. Myndin heitir Svart og hvítt og er rúmlega 60 mínútur að lengd. Þess má geta að ágóðinn af gerð myndarinnar mun renna til Rauða Kross Íslands.

Um söguþráð myndarinnar segir í fréttatilkynningu:

„Myndin er um nokkra menn sem frétta af því að dópsali hafi fengið nýja sendingu af kókaíni og þessir menn ákveða að ræna því. Þeir eru nokkuð ánægðir með sig eftir ránið en dópsalinn kemst að því hver stal dópinu og vill fá borgað. Mennirnir vita ekkert hvað þeir eiga að gera en ákveða það að ræna nokkrar búðir. Ránið gengur vel og halda þeir aðeins upp á þetta og fara svo að sofa en ekki batnar það...“

Hér má sjá stiklu úr myndinni.

http://youtu.be/3Po8002TL5k

Fleiri fréttir