Sveitabakarí - Kaffitería lokuð í bili

Sveitabakarí - Kaffitería lokaði frá og með 1. desember síðastliðinn. Í tilkynningu frá fyrirtækinu sem birt var á Húna.is segir að vonast sé til þess að grundvöllur verði fyrir að opna aftur næsta vor.

„Sveitabakarí – Kaffitería opnaði í byrjun júní afgreiðslu í Kaupfélagshúsinu og voru viðtökur mjög góðar,“ segir í tilkynningunni. Sveitabakarí tekur að sér tertubakstur og margt fleira og er tekið við pöntunum og fyrirspurnum í síma 8687951 og á sveitabakari@sveitabakari.is.

 

Fleiri fréttir