Sveitabakarí Kaffitería opnar á Blönduósi

Sveitabakarí Kaffitería hefur verið opnað í „Kaupfélagshúsinu“ á Blönduósi. Brauðið og bakkelsið er frá Sveitabakaríi og Sauðárkróksbakaríi en bakaríin vinna saman að þessu verkefni. Þar verður einnig hægt að gæða sér á léttum hádegisverð, auk hefðbundins bakkelsis.

Hallfríður Ósk Óladóttir, eða Haddý, ein af þeim sem standa að rekstrinum, sagði í samtali við Húna.is að þeim hafi verið afar vel tekið og mikið verið að gera þessa fyrstu daga.

Opið verður á mánudögum til föstudaga frá 7:45 – 17:30 og kl. 9:00 – 17 um helgar.

Fleiri fréttir