Sveitafélagið Skagaströnd styrkir efnilegan kúluvarpara
Á sveitastjórnarfundi á Skagaströnd á dögunum barst erindi frá frjálsíþróttadeild FH sem leitar eftir styrktaraðila fyrir Stefán Velemir en hann þykir einn efnilegasti kúluvarpari landsins.
Stefán tekur þátt í nokkrum stórmótum á næstunni og mun einnig dvelja í æfingabúðum.
Sveitastjórnin samþykkti að styrka frjálsíþróttadeild FH vegna Stefáns um 200.000. kr