Sveitarfélög hugi að forvarnarstarfi

Saman-hópurinn hefur sent hvatningu til allra sveitarstjórna landsins um að huga að forvarnarstarfi, sporna gegn áhættuhegðun unglinga og styðja við foreldra í uppeldishlutverkinu í tengslum við úti- og bæjarhátíðir. Sumarið er ávallt álagstími þegar kemur að því að foreldrar setji skýr mörk gagnvart unglingum sínum og því mikilvægt að skemmtanahaldarar sem og leyfisveitendur slíkra hátíða og annarra skemmtana axli ábyrgð á því að ekki skapist svigrúm fyrir áhættuhegðun unglinga og styðji þannig við foreldra og gildi samfélagsins.

Samanhópurinn vill hvetja þau sveitarfélög sem bjóða heim á stórar bæjarhátíðir í sumar að hyggja vel að öllu skipulagi er varðar öryggi barna og ungmenna t.d. með því að framfylgja aldurstakmörkunum áfengislaga, lögum um útivistartíma barna og taka mið af öðrum verndarákvæðum barnaverndarlaga. Þá hvetjum við ykkur til að leggja öðru fremur áherslu á  samveru fjölskyldunnar og  að skapa góðar minningar.

Saman-hópurinn býður sveitarstjórnum að nýta rafrænar auglýsingar og vefborða átaksins án endurgjalds og einnig öll önnur verkefni hópsins. Hvatningin er liður í sumarátaki hópsins. Í honum sitja meðal annars fulltrúar lögreglu og landlæknis, lýðheilsu og frá samtökum foreldra sem og félagsþjónustu og forvarnafulltrúar víðsvegar af landinu. Húni.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir