Sveitarstjórnarráðherra vill auka svigrúm sveitarfélaga

Sigurður Ingi. MYND AF FB
Sigurður Ingi. MYND AF FB

Húnahornið flytur frétt af því að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru á íslenskt efnahagslíf og samfélag. Markmið frumvarpsins eru einkum þríþætt: Að auka svigrúm sveitarfélaga til að ráðast í auknar fjárfestingar, auðvelda sveitarfélögum að koma til móts við rekstraraðila í greiðsluerfiðleikum og að tryggja að sveitarstjórnir geti starfað og tekið ákvarðanir við óvenjulegar aðstæður, m.a. á tímum heimsfaraldurs.

Í frétt Húnahornsins segir: „Með frumvarpinu er svigrúm sveitarfélaga aukið til að ráðast í auknar fjárfestingar og mæta aðsteðjandi vanda í rekstri vegna þeirra áhrifa sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft á íslenskt efnahagslíf og búskap hins opinbera. Það er m.a. gert með því að framlengja það tímabil sem sveitarfélögum er heimilt að víkja frá jafnvægisreglu og skuldareglu sveitarstjórnarlaga frá árinu 2022 til ársins 2025. Einnig eru lagðar til breytingar á lögum um Lánasjóð sveitarfélaga og sjóðnum veittar heimildir til útlána til sveitarfélaga vegna rekstrarvanda þeirra. Breytingarnar eru gerðar í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélag um markmið og afkomu sveitarfélaga árin 2021-2025.

Jafnframt er frumvarpinu sérstaklega ætlað að auðvelda sveitarfélögum sýna aukinn sveigjanleika við innheimtu og koma þannig til móts við rekstraraðila sem eiga í greiðsluerfiðleikum vegna faraldursins. Meðal annars er lagt til að lögveð með fasteignasköttum á atvinnuhúsnæði gildi í fjögur ár í stað tveggja. Einnig er sveitarfélögum veitt heimild til að lækka eða fella niður dráttarvexti á álagða fasteignaskatta vegna atvinnuhúsnæðis á árunum 2020-2022.

Frumvarpinu er loks ætlað að tryggja starfhæfi sveitarfélaga og auðvelda sveitarstjórnum að taka ákvarðanir við óvenjulegar aðstæður. Í fyrravor samþykkti Alþingi að bæta við bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög um að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga vegna neyðarástands. Á grundvelli ákvæðisins hefur ráðherra veitt sveitarfélögum ýmsar heimildir til að víkja tímabundið frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga sem fjalla um stjórn sveitarfélaga, svo sem skilyrði laganna um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórna og fastanefnda. Nú er lagt til að sambærilegt ákvæði verði lögfest með varanlegum hætti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir