Sveitasæla 2013

Sveitasæla 2013, landbúnaðarsýning og bændahátíð, verður haldin laugardaginn 24. ágúst n.k. Sýningin verður með heðfðbundnu sniði, þar koma saman bændur og búalið, ásamt vinnuvélasýnendum og handverksfólki, sýna sig og sjá aðra og skemmta sér saman.

Við opnun sýningarinnar munu Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands og Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðarráðherra, flytja ávörp.

Þegar dagskrá lýkur um kvöldið verður blásið til kvöldvöku þar sem margt verður til skemmtunar, en venju samkvæmt er það Bændafitnessið sem mun væntanlega vekja mesta lukku, en þar reyna sprækir bændur með sér í þrautabraut á tíma. Stjórnandi Bændafitnessins að þessu sinni, verður hinn landskunni landbúnaðarframámaður Guðmundur Hallgrímsson frá Hvanneyri.

Eins og venjulega verða básar og sýningarsvæði inni og úti til leigu og er verðið það sama og í fyrra:

Sveitamarkaður / handverksmarkaður kr. 5.000.- borðið er 70x280 cm.

Sýningarsvæði á gólfi kr. 6.000.- fermetrinn með rafmagni og netsambandi.

Útisvæði kr. 300.- fermetrinn

Ath. öll verð eru fyrir utan vsk.

Nánari upplýsingar um hátíðina gefa Guðný (898 2597) og Kalli (691 6633) í Markvert ehf, en netfang SveitaSælunnar er sveitasaela@markvert.is. Þeir sem vilja panta borð á handverksmarkaðnum eða bás, geta gert það með því að senda tölvupóst.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir