Svínavatn 2014
Laugardaginn 1. mars verður ísmótið Svínavatn 2014 haldið á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár.
Verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur á hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins.
