Svínavatn 2015
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Hestar
06.02.2015
kl. 14.15
Laugardaginn 28. febrúar verður ísmótið Svínavatn 2015 haldið á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og opnum flokki í tölti.
Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur, á hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins. Vegleg peningaverðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti í hverjum flokki, fyrir tilstuðlan helstu styrktaraðila mótsins sem eru: Hrossaræktarbúið Geitaskarði, G. Hjálmarsson, Margrétarhof og KS. Eins og venjulega verður gott hljóðkerfi á staðnum og dagskránni útvarpað.
Fréttatilkynning