Svínavatnsleið í einkaframkvæmd?
Svínavatnsleið, einnig nefnd Húnavallaleið, í Austur-Húnavatnssýslu er dæmi um vegaframkvæmd sem Vegagerðin telur koma til greina að setja í einkaframkvæmd, að því er fram kemur í samtali við Hrein Haraldsson vegamálastjóra á Vísi.is, en þar svarar hann ummælum innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, í Fréttablaðinu þar sem hún sagðist vilja aukið samstarf hins opinbera við einkaaðila í vegaframkvæmdum.
Umrædd leið uppfyllir þau skilyrði sem innanríkisráðherra setur um vegi í einkaframkvæmd en Hanna Birna telur slíkar framkvæmdir ekki koma til greina nema vegfarendur eigi kost á annarri leið samhliða einkaframkvæmdinni. Svínvetningaleið myndi liggja fyrir sunnan Blönduós og stytta hringveginn um 12 til 15 kílómetra eftir því hvaða vegstæði yrði valið. Vegfarendur hefðu val um hvort þeir færu um Blönduós eða færu Svínvetningaleið.