Svínavatnsleið þjónar ekki hagsmunum heimamanna

Jens Pétur Jensen sveitarstjóri Húnavatnshrepps segir að heimamenn sjái það ekki þjóna hagsmunum sínum að hraðbraut verði lögð í gegnum sveitarfélagið. Þeim sýnist að betur færi á því að eyða hluta af þeim þremur milljörðum sem talið er að framkvæmdin kosti, í viðhald og uppbyggingu vega innan sveitarfélagsins.

Þetta kemur fram í fréttaskýringu á vef Landpóstsins sem er fréttavefur fjölmiðlafræðinema við Háskólann á Akureyri en þeir hafa verið duglegir að fjalla um deilurnar um Svínavatnsleið að undanförnu.

Jens Pétur segir í samtali við Landpóstinn að margir íbúanna sæki vinnu að, þá ekki hvað síst á Blönduós og þótt af veglagningu um Svínavatnsleið yrði, þyrftu íbúar sveitarfélagsins áfram að keyra á ónýtum malarvegum. Hann segir þá langþreytta á ástandi vega þar. Í sveitarfélaginu séu örfáir kílómetrar með bundnu slitlagi og lítið hafi verið að gert síðustu árin. Jafnvel hafi uppbygging vegarins milli þjóðvegar 1 og Húnavalla verið komin í útboð árið 2009 þegar framkvæmdin var blásin af í kjölfar hrunsins.

Jens Pétur bendir jafnframt á að núverandi þjóðvegur verði áfram tenging Blönduóss við nýjan þjóðveg 1 þótt af flutningi yrði og yrði því áfram í notkun. Nýtt vegsvæði fari að hluta í gegnum land sömu jarða og nú þegar séu skornar sundur af þjóðvegi 1. Landeigendur séu skiljanlega ósáttir við að nýtingarmöguleikar jarðanna skerðist enn frekar með lagningu nýs vegar gegnum þær.

/Húni.is

Fleiri fréttir