Svipað og málning sem ekki þornar
Vegagerðin varaði við blæðandi slitlagi á köflum á þjóðvegi 1 á veginum um Holtavörðuheiði, úr Borgarfirði og ofan í Hrútafjörð um síðustu helgi. Lentu menn í verulegum óþægindum vegna þessa. Hjá Vörumiðlun var það að frétta að einn flutningabíll hefði lent í þessum óskunda undir miðnættið á föstudagskvöld.
Að sögn Magnúsar Svavarssonar varð ekki tjón af þessum völdum en veruleg óþægindi. Hann bendir á að við slíkar aðstæður sem myndast þegar blæðing á sér stað getur skapast stór hætta, ekki bara hjá ökumönnum flutningabíla heldur geta klumpar spýst á aðra vegfarendur þegar þeir losna af dekkjum. Magnús segir það undarlegt hvernig vegirnir eru en bílar Vörumiðlunar eru allir útataðir í tjöru eftir hverja ferð suður. „Mér finnst það skrítið hjá Vegagerðinni sem segir að þetta ætti ekki að koma á óvart. Það er eitthvað að þessari blöndu og það ætti ekki að koma Vegagerðinni á óvart,“ segir Magnús og bendir á að öðru vísi sé háttað erlendis. „Á okkar bílum hér eru grindurnar orðnar þungar eftir 2-3 ár en maður sér ekkert á grindum þeirra bíla sem keyptir eru notaðir til landsins. Þetta er jafn helvíti lélegt og að nota málningu sem ekki þornar.“