Svipmikil spákona
Við sögðum frá því í gær að hið skemmtilega fyrirtæki Spákonuarfur á Skagaströnd hefur látið útbúa vaxmynd af Þórdísi spákonu í fullri stærð sem komið verður fyrir í spáhofi því sem henni verður tileinkað í framtíðinni.
Sagt var að líklegt mætti telja að heimamenn munu þekkja svip spákonunnar en vaxmyndin er gerð að fyrirmynd þeirrar leikkonu sem lék Þórdísi í uppfærslu um hana árið 2008. Hvað sem því líður er ekki annað að sjá en verkið hafi tekist vel og Þórdís spákona glæsileg eins og fyrirmyndin og á eflaust eftir að vekja eftirtekt í framtíðinni.

