Sýndu hvað í þér býr

Frá undirritun samningsins.

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Þessir aðilar skrifuðu í dag undir samstarfssamning þar að lútandi í höfuðstöðvum UMFÍ við Laugaveg 170 í Reykjavík.

 
Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.  Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sagði eftir undirskriftina vonast eftir því að námskeiðin yrði þátttakendum skemmtileg og umfram allt gagnleg. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, tók undir orð formanns UMFÍ og sagði tímasetningu námskeiðanna góða í þeim erfiðleikum sem samfélagið er að fara í gegn um einmitt um þessar mundir. Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands, lýsti ánægju með samstarfið sem væri kvenfélagasambandinu ómetanlegt. Hún vonaðist eftir að konur yrðu duglegar að taka þátt í námskeiðunum.
Sigurður Guðmundsson hefur verið ráðinn til að stjórna félagsmálafræðslunni en hann er íþróttafræðingur að mennt en sem slíkur útskrifaðist hann frá Háskólanum í Reykjavík á sl. vori.
Þess má geta að fyrsta námskeiðið verður haldið í Litlu-Laugaskóla í Þingeyjarsýslu í kvöld, 30. október, og á morgun verður námskeið að Þelamörk í Hörgárbyggð. Ákvarðanir um fundarstaði í vetur munu birtast í fjölmiðlum og á heimasíðum samstarfsaðila.
Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið  hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og  Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is

Fleiri fréttir