Syngjandi sjómenn á Skagaströnd - Myndband
Á Skagaströnd hefur myndast sérstök hefð á sjómannadaginn en þá koma saman að stærstum hluta sjómenn (einstaka undantekningar) og æfa saman lög fyrir athöfn sem haldin er í Hólaneskirkju. Ekki var brugðið út af vananum um helgina og blásið til tónleika. Á YouTube er hægt að nálgast myndband sem sýnir hve mikilir söngmenn sjómennirnir eru á Skagaströnd.
Kórstjórn og píanó er í höndum Hugrún Sifjar Hallgrímsdóttur, bassi: Fannar Viggósson og þeir Guðlaugur Ómar Guðmundsson og Unnar Leví Sigurbjörnsson leika á gítar.
http://www.youtube.com/watch?v=jhnr4LoHw1w