Sýslumannsbrekkan í nýjan búning
Framkvæmdum við Aðalgötuna á Blönduósi er nú að ljúka, samkvæmt frétt á vefnum huni.is, en í lok síðustu viku var lögð klæðning á götuna, frá Tilraun og upp að kirkjugarðinum. Framkvæmdir við götuna hófust maí með jarðvegsskiptum og var í upphafi gert ráð fyrir að gatan yrði malbikuð.
Kostnaður við malbikun var áætlaður um 7,3 milljónir króna og var ekki gert ráð fyrir honum í fjárhagsáætlun Blönduósbæjar á þessu ári. Bæjarráð ákvað því að ganga til samninga við Borgarvirki um klæðningu á götuna en slík framkvæmd mun vera mun ódýrari en malbikun.
Endurnýjun Sýslumannsbrekkunnar á Blönduósi hefur verið fagnað af bæjarbúum og brottfluttum Blönduósingum en fjölmargir hafa lýst ánægju sinni með að loksins sé götunni og brekkunni sýnd sú virðing sem hún á skilið. Brekkan hefur lengi verið kölluð Sýslumannsbrekkan vegna þess að aðsetur sýslumannsins á Blönduósi var efst uppá brekkunni á Brekkubyggð 2 og síðar Garðabyggð 1.