Systkini sjá um Húnavöku í ár
Á Húnahorninu kemur fram að menningar- og fegrunarnefnd Blönduósbæjar hefur samið við systkinin Eystein Pétur Lárusson og Kristínu Ingibjörgu Lárusdóttir um að þau sjái um undirbúning og framkvæmd Húnavöku 2013. Hátíðin verður haldin verður þriðju helgina í júlí, það er 19.-22. júlí.
Markvert ehf. sagði sig frá verkefninu fyrr í þessum mánuði, eins og fram hefur komið á Feykir.is. Í mars síðastliðnum var gengið frá samningum við Markvert ehf. um að fyrirtækið yrði umsjónaraðili Húnavöku 2013, líkt og það gerði með góðum árangri í fyrra. Fyrr í þessum mánuði barst menningar- og fegrunarnefnd Blönduósbæjar bréf frá Markvert ehf. þar sem fram koma að fyrirtækið sagði sig frá verkefninu og lágu persónulegar ástæður þar að baki.