Tæp ein og hálf milljón úr Sprotasjóði á Norðurland vestra
Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013. Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og er hlutverk hans að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Skólar á Norðurlandi vestra meðal þeirra 46 verkefna sem fengu úthlutað.
Áherslusvið sjóðsins að þessu sinni voru: Þróun skólanámskrár með hliðsjón af nýrri menntastefnu og Virkt lýðræði, mannréttindi og samskipti í skólum. Umsóknarfrestur var til 29. febrúar sl. og bárust 190 umsóknir að þessu sinni. Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að tillögu stjórnar, að veita styrki til 46 verkefna að upphæð rúmlega 43. millj. kr.
Þeir skólar á Norðurlandi vestra sem fengu styrki voru:
Grunnskóli Húnaþings vestra, Ungmennalýðræði Félagsmiðstöðin Orion með styrk upp á kr. 150.000-.
Grunnskólinn austan Vatna Félagastuðningur Helga Harðardóttir, Dene Magna, leiðtogaskóli í Englandi kr. 500.000-
Árskóli Vinaliðar Fræðsluþjónusta Skagafjarðar kr. 800.000-.