Tæpar 66 milljón króna rekstrarhagnaður fyrstu átta mánuði ársins hjá Blönduósbæ
Rekstraryfirlit Blönduósbæjar fyrstu átta mánuði ársins var lagt fram á fundi bæjarráðs í gær en þar kemur fram að bókaðar tekjur námu alls 431,9 millj.kr. en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir tekjum að upphæð 640 millj. kr. allt árið 2011. Tekjur vegna álagðra fasteignagjalda voru bókaðar til tekna á tímabilinu febrúar-ágúst.
Bókuð útgjöld fyrstu átta mánuði ársins eru 364,8 millj. kr. en fjárhagsáætlun ársins gerir ráð fyrir útgjöldum upp á 580, 6 millj. kr. allt árið. Niðurstaða úr rekstri þetta tímabil er því 65,9 millj. kr. tekjur umfram gjöld en fjárhagsáætlun án afskrifta, verðbóta og söluhagnaðar gerir ráð fyrir 59,4 millj. kr. tekjum umfram útgjöld.
Fjárfestingar þessa mánuði voru 2,9 millj. kr. en gert var ráð fyrir 7 millj. kr. í fjárfestingar árið 2011.