Taka á upp afsláttarkerfi fyrir skólamáltíðir
Bæjarstjóri Blönduósbæjar kynnti á dögunum fyrir bæjarstjórn fyrirkomulag afsláttarkerfis skólamáltíða skólaárið 2011-2012 .Boðið verður upp á tvo áskriftarmöguleika. Annars vegar að nemendur séu skráðir í mataráskrift í 1 önn fyrir fram og hins vegar að nemendur séu skráðir i mataráskrift 1 mánuð fyrir fram.
Bæjarráð samþykkir að taka upp afsláttarkerfi skólamáltíða skólaárið 2011-2012 og var .bæjarstjóra falið að vinna frekar að málinu í samráði við skólayfirvöld.