"Takk fyrir að standa með fólkinu sem kaus þig"
„Takk Ásmundur, fyrir að standa með fólkinu sem kaus þig,“, er meðal ummæla á Fésbókar síðu Ásmundar Einars Daðasonar sem í gærkvöld lýsti vantrausti á ríkisstjórn sína. „Farið hefur fé betra,“ sagði Þórunn Sveinbjarnadóttir Samfylkingu upphátt í þingsalnum en þessi orð hennar endurspegla kannski ástandið sem verið hefur á stjórnarheimilinu síðustu misseri.
Í viðtali á Rás 2 í morgun sagðist Ásmundur munu ganga til liðs við þau Atla Gíslason og Lilju Mósesdóttur það er hann ætli áfram að vera í Vinstri grænum en starfa utan þingflokks. Sagðist Ásmundur ætla að styðja ríkisstjórnina í þeim verkefnum sem samræmdust stefnu VG en ekki öðrum málum.
Á fésbókarsíðu Ásmundar lýsa margir stuðningi við hann og ljóst að hans fólki fannst þetta vera löngu tímabært skref. Þó mátti einnig sjá þar inni einstaklinga sem voru verulega ósáttir við þessa ákvörðun Ásmundar.
Guðmundur Steingrímsson, þingmaður framsóknar í NV kjördæmi, studdi ekki vantrausttillöguna og sat hjá. Sagði Guðmundur að hann teldi þetta ekki réttan tímapunkt til þess að efna til kosninga með tilheyrandi upplausn.