Takmörkun á skólastarfi frá 3. nóvember

Mynd af vef heilbrigðisráðuneytisins.
Mynd af vef heilbrigðisráðuneytisins.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða tekur gildi á morgun 3. nóvember. Sett er þau markmið að sem minnst röskun verði á skólastarfi og að starf á leikskólastigi og á fyrsta stigi grunnskóla verði óskert. Að ráði sóttvarnalæknis verður reglu um grímuskyldu breytt þannig að hún eigi ekki við um börn fædd 2011 og síðar.

Á vef heilbrigðisráðuneytis kemur fram að reglugerðin byggist á tillögum sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaaðgerðir til að sporna við útbreiðslu COVID-19 faraldursins og er unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hún tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um ræðir opinbera eða einkarekna skóla. Reglugerðin tekur einnig til annarrar starfsemi, svo sem frístundaheimila og félagsmiðstöðva, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs.

Leikskólar
Ekki skulu vera fleiri en 50 leikskólabörn í hverju rými. Leikskólabörn eru undanþegin 2 metra nálægðartakmörkun. Starfsfólk skal halda 2 metra nálægðartakmörkunum sín á milli og sé það ekki hægt skal starfsfólk nota andlitsgrímur. Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er óheimilt, jafnt innan og utan leikskóla.

Grunnskólar

Fyrsta skólastig, þ.e. 1.–4. bekkur: Nemendur eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun og þurfa ekki að nota andlitsgrímur. Alls mega 50 nemendur vera í sama rými. Sömu reglur gilda um frístundaheimili fyrir nemendur í 1.–4. bekk.

5.–10. bekkur: Nemendur mega að hámarki vera 25 í hverju rými. Um þá gilda 2 metra nálægðartakmörk og ef ekki er hægt að uppfylla þau skulu nemendurnir nota grímu. Starfsfólk skal jafnframt halda 2 metra regluna og nota grímu sé það ekki mögulegt.

Starfsfólk grunnskóla: Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými en starfsmönnum er heimilt að fara á milli hópa. Starfsmenn skulu virða 2 metra regluna sín á milli og gagnvart nemendum í 5.–10. bekk. Sé það ekki hægt skulu þeir bera grímur.

Fjöldamörk og blöndun hópa: Halda skal sömu hópaskiptingu nemenda í grunnskólastarfi og á frístundaheimilum þannig að ekki verði blöndun milli nemendahópa. Í sameiginlegum rýmum skóla er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkum og reglu um blöndun hópa, að því gefnu að nemendur í 5.–10. bekk og starfsfólk noti grímu.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.m.t. starf félagsmiðstöðva, barna á grunnskólaaldri er óheimilt.

Fyrsta námsár á framhaldsskólastigi

Í skylduáföngum á framhaldsskólastigi sem teknir eru á fyrsta námsári er heimilt að hafa allt að 25 einstaklinga í rými, að því gefnu að hægt sé að halda 2 metra nálægðartakmörkum.

Framhaldsskólastig, háskólar og tónlistarskólar

Almennt gildir regla um 10 manna fjöldatakmörk, 2 metra nálægðarmörk og grímuskylda í háskólum og tónlistarskólum og einnig á framhaldsskólastigi, að undanskildum áföngum á fyrsta námsári. Blöndun nemenda milli hópa í kennslu er ekki heimil, en starfsfólki og kennurum er heimilt að fara á milli hópa. Í sameiginlegum rýmum skóla er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa, að því gefnu að notaðar séu andlitsgrímur.

Heimilt er að halda úti verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi með sömu fjöldatakmörkun þótt ekki sé hægt að framfylgja 2 metra nálægðarmörkun en nemendum og kennurum er þá skylt að nota andlitsgrímur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir